..::God fornøjelse::..
Ýmislegt
08.10.2006 19:06:58 / berglind

Síðan í gröfina... í bili a.m.k. !


Þar sem að það er gaman að breyta til þá hef ég ákveðið að prófa nýtt blogg, hvort ég muni fíla það er svo allt önnur saga en við sjáum til...

endilega kíkiði :)  berglind83.wordpress.com

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.10.2006 08:49:59 / berglind

Jeiiiiiiiiiiiiiii!


...langaði bara að deila því með ykkur hvað ég skemmti mér yndislega vel í afmælispartýinu mínu í gær, loooooksins orðin 17 :D Svekkjandi að vera bara heima á Íslandi núna, haaaa... vildi að þið hefðuð verið hérna líka!!

Ásgerður liggur hérna við hliðina á mér og hrýtur... nei, ok steinsefur bara svo að ég ákvað að segja hæ! Er bara ljómandi hress, a.m.k. ennþá :) Nú skal ég skella inn myndum fljótlega svo að þið gleymið mér nú ekki!

Dagurinn byrjar vel :)

» 14 hafa sagt sína skoðun

17.09.2006 19:39:20 / berglind

Þvílík kaup... svo gott í þessu!

Ummmmmdaaaaa... hin fínasta helgi á enda - again :) Hún byrjaði reyndar pínu undarlega, kom heim úr skólanum rétt fyrir fjögur eftir enn einn glataðan kommunikation fyrirlestur, veit ekki hvenær ég vex upp úr því (ef það er rétt til orða tekið) að mæta í alla tíma, sumt er bara hreinlega tímasóun, fór reyndar eftir fyrri tímann, ágætis byrjun!

En já, ég s.s. kom heim og vissi ekki alveg hvað ég átti af mér að gera þar sem að ég var skráð á næturvakt en var ekkert búin að heyra frá FADL - við s.s. tökum vaktir hér og þar þegar vantar aukafólk! Ætti ég að leggja mig og svo kannski ekki fá vakt eða bara vaka og láta mig hafa það?? Um sexleytið ákvað ég að reyna að sofna sem gekk brösulega þar sem ég var ekkert þreytt en ég reyndi og reyndi, var svo alveg að sofna um 7 þegar fadl hringir og jújú ég fékk vakt.... svo að milli 7 og 10 rembdist ég við að sofa, dottaði í 10mín. hér og þar en frekar lítill svefn... var samt kolrugluð þegar klukkan hringdi klukkan 10!



Vá Berglind, góð saga.... 9,5! Ég hef bara aldrei áður farið á næturvakt svo að ég kann þetta ekki alveg ;)



Var á vakt út á spítala... "passa" (ekki alveg viðeigandi orð) stelpu sem hafði reynt að fyrirfara sér :S En hún svaf meira og minna alla nóttina svo að ég gerði ansi margar sudoku þrautir og las anatómíu og fleira skemmtilega, leið nú bara hraðar en ég hefði búist við!



Sjísús, eflaust einhverjir hættir að lesa enda bara þvæla sem kemur upp úr mér núna :)



Gyða var svo yndisleg að bjóða okkur Hillu og Hauki vini sínum í íslenskar pönnsur og kakó í gær svo að ég fór nánast beint úr rúminu í ljúffengar pönnsur. Gyða er nýflutt í glæsiíbúð á þvílíkt flottum stað, með risagarð sem nær niður að ánni. Hún leigir s.s. herbergi hjá íslenskum strák. Efir spjall og kósíheit hjá Gyðu hélt ég chillinu áfram heima og sofnaði snemma... frekar undarlegt hvað sjónvarpsdagskráin er alltaf slök um helgar, einmitt þegar maður ætlar ekki að læra!



Við Hildur kíktum svo upp í skóla til mín í dag en þar fór fram H.C. Andersen (surprise að það heiti það...) maraþonið. Við kíktum á nokkra koma í mark en eyddum langmestum tíma inni í íþróttahúsi þar sem var íþróttavörumarkaður og alvöru afsláttur á vörunum!! Gerður báðar þvílíkt góð kaup og hefðum getað spreðað mun meiru svona ef við værum ekki fátækir námsmenn ;) Ég keypti mér fancy smansí asics hlaupaskó, íþróttatopp, sokka og eyrnaband fyrir 1200kall og skórnir þar af 1000kall ! Danskar svona ef einhver var svo sniðugur að efast!



Ætlaði svo í spinning áðan en neinei, mætti enginn kennari svo að við stúlkurnar (ég, Sandra og Hildur) ösnuðumst til að gera eitthvað sjálfar, hálfskrýtið samt hvað maður getur verið latur þegar maður er búin að ákveða að vera að fara að gera eitthvað sérstakt og það svo gengur ekki upp.....



Jæja, eins og færslan ber með sér þá var alllllt of lítið lært þessa helgina ennnnn ekkert við því að gera núna.... hey, búin að panta flug heim :D



Og að lokum fyrir Ingu Rós og aðra áhugasama... er þessa önnina í endalausri anatómíu - iðraanatómíu, höfuð og háls og líka almenna (vöðvar, bein, taugar...) og svo samskiptafræði, fósturfræði, vefjafræði oooooog skyndihjálp! Spennó spennó :)


» 10 hafa sagt sína skoðun

10.09.2006 17:48:15 / berglind

Einhver óþolinmæði í gangi?!


....jebbs, ég veit, ég á að vera duglegri að skrifa "kæra dagbók" færslur meðan ég er í útlandinu, lofa nú ekki daglegum færslum ennnnn... ætla að standa mig eitthvað betur a.m.k. :)

Anyways... það er allt það besta að frétta af mér fyrir utan einstaka smávægileg skólastressköst, hehemmmm... helgin búin að vera róleg en voðafín. Á föstudaginn var menningarnótt í bænum, yndisleg stemmning í bænum og hægt að labba um göturnar ólíkt menningarnótt heima. Ég, Hildur, Þórdís, Gyða, Gussi (kíkti á okkur frá köben) og Sandra hildarbekkjarsystir skelltum okkur í bæinn - kíktum á nordatlantisk kulturnat i ráðhúsinu þar sem Grænland, Ísland og Færeyjar voru með landkynningar og listamenn frá löndunum þremur voru með sýningar. Við skemmtum okkur konunglega yfir færeyska dagblaðinu hahaha, söndru (færeysk!) finnst íslenskan reyndar álíka fyndin. Annar hápunktur kvöldsins var svo hljómsveitin the Bootles, breskt bítlacoverband, mjög skemmtilegir! Eftir rölt, meiri tónlist, vondan ítalskan bjór og 80´s safn kíktum við aðeins á Smekkleysu (kaffihúsið "okkar" ) þar sem Sandra danska heilsaði upp á okkur. Við röltum svo í pizzu og heim. Gott kvöld :) Í gær var svo lestur og íþróttagláp, reyndar kannski aðeins of mikið af því síðarnefnda en oh well, var svo bara heima í rólegheitum í gærkvöldi. Í dag var þvílík bongóblíða og maður hangir inni að lesa, puff... við Hilla skelltum okkur reyndar í smá göngutúr og húsaskoðun, mér finnst svo gaman að skoða hús og garða :)

Annars er lítið að frétta, skólinn byrjar alveg á fullu, skemmtileg fög reyndar (flest!) en þeim mun meira að gera svo að ég á það til að gleyma að njóta námsins.... erum t.d í palpation sem ég kýs að kalla þuklfagið þar sem við erum að þukla á vöðvum og beinum og svona hjá hvort öðru, gaman að fá að gera eitthvað annað en að lesa! Langaði eitt augnablik að verða kíróprakotr um daginn ennnnnn, naaaa... Frekar fyndið moment í fyrsta tímanum. Flestir vissu að við mættum búast við því að vera á nærfötunum í tíma en það hefur eitthvað farið framhjá honum Thomasi... hann var tekinn upp sem sjálboðaliði og kennarinn biður hann um að fara úr öllu nema nærfötunum og þá kemur eitthvað hik... "uuuuuh, ég er ekki í neinum nærbuxum", jebb það fara greinilega ekki allir í nærbuxur á morgnana!

Á nú ekki margar en reyni bráðlega að setja inn myndir frá heimsókn pabba, Rósu og Brynjars Kára.... æðislegt að hafa þau og svei mér þá ég stóð mig bara ansi vel í mömmuhlutverkinu en puha, full vinna ;)

Á von á tveimur heimsóknum þessa önnina - Ásgú frá Osló mætir í afmælið mitt og Hrefna og Jóhanna ætla að kíkja í byrjun nóv.! Er svo að hugsa um að koma heim um jólin þó ekki verði nema í örfáa daga, Hildur og Þórdís ætla reyndar að vera hérna úti ennnnnnn.... ég verð að hitta fólkið mitt :D

Jæja, látum þetta gott heita í bili.... bið að heilsa heim!

» 4 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 10:08:52 / berglind

Ég er á leiðinni, á leiðinni....


Vááá, þá er fyrstu önn í læknisfræðinni lokið, undarlegt :) Prófið gekk ljómandi vel bara á föstudaginn, fattaði reyndar að fullkomnunaráráttan er nú enn til staðar, þóttist vera laus við hana! Við fáum nefnilega ekki einkunn í þessu prófi bara bestået eða ikke bestået en ég var samt svo svekkt yfir að hafa gert klaufavillu, hehe... þið megið hlæja að mér svo ef ég fell... neinei, svörin eru komin á netið svo að ég er nokkuð góð með mig :D

Helgin hefur svo farið í hangs og hehemmm... þynnku eftir föstudaginn, djamm til 8 um morgunin, jebbs :S Nú er ég bara að chilla og horfa á tv, ekkert komið ofaní tösku enn en er búin að finna til það mesta og hef nú líka 6 tíma enn!!

Hlakka til að sjá ykkur tomorrow, lendi seint í kvöld :D

» 18 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 06:17:52 / berglind

Stolt mamma og frænka !

Ég var voðadugleg að styðja mitt fólk í vikunni... byrjum á dóttur minni henni Hildi. Það er orðin vani að kalla mig mömmu hennar þar sem ég er sú sem mynda öll hennar "first" í lífinu þessa dagana...plús reyndar að ég kannski segi henni of mikið til :S

Anyways.... fyrsta skipti á línuskautum...



fyrsta skipti sem hún hljóp 5km á tíma...



...í hvorki meira né minna en 20.000 manna eventyrløbinu 2006 !



Og alltaf stendur þessi elska sig eins og hetja ;)

Þá er komið að hinni hetju helgarinnar, Gulla frænda. Hann mætti til Odense á föstudaginn til að hlaupa í 100km hlaupi hvorki meira né minna og þar sem hann er í minni fjölskyldu þá stóð hann sig að sjálfsögðu eins og hetja...



Staurinn þvældist fyrir endasprettinum - það voru sko ekki margir sem höfðu orku í endasprett get ég sagt ykkur ;)



Gulli hljóp á glæsilegum tíma 10tímum og 10mín. og hafnaði í 9.sæti! Honum var að sjálfsögðu fagnað með hrópum og íslenska fánanum af okkur Hildi :D Fengum líka þennan fína hjólatúr í leiðinni, hlaupið fór fram út í ra....

Og believe it or not, sigurvegarinn hljóp á hvorki meira né minna en 7:45, unbelievable!!

Ég er hress, svona ef þið voruð að pæla ;)

» 8 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 19:52:05 / berglind

Þvílík helgi :D




Need I say more?


Er að horfa á heimildarmynd um ótrúlegan sjúkdóm - Harlequin Ichthyosis! Börn sem framleiða of mikið skinn og vááá því fylgja sko ýmis vandamál. Dáist af lífsgleði barnanna og dugnaði foreldranna - fjallar um systur með sjúkdóminn!



» 9 hafa sagt sína skoðun

18.05.2006 07:58:03 / berglind

Heia Sverige!


Jæja þá er 2 daga praktík í Svenborg lokið og var að klára verkefnið sem ég þurfti að gera JEIIII!! Vaktirnar voru fínar, AFARrólegar en í gúddí :)

Og nú er looooooksins komið að því að skella sér til útlanda ;) Ætla að hoppa upp í lest eftir nokkra tíma og skella mér í ROSALEGT prógram í Sverige! Mun búa þar í góðu yfirlæti Kolbrúnar og félaga... svo að nú er bara að henda ofaní tösku, sturtast og koma mér af stað... lokasluks fyrir próf :D

Later tater...

» 9 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 16:04:07 / berglind

Ætli hún verði nokkuð rekin úr keppninni?


http://www.youtube.com/watch?v=OQn7JxsK_yE

:)

» 4 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 17:52:14 / berglind

Namminamm...


var að borða yfir mig af íslensku saltkjöti nammmmm hvað það var gott :)

All gott að frétta annars héðan úr blíðunni, frídagur í dag - Store Bededag, allir að biðja og biðja, neeeeee, flestir fagna bara langri helgi ! Var í grillveislu í Fruens Bøge í gær með læknisfræðikrökkum og Hildi... Grilluðum pulsur, spiluðum misheppnað tennis, enn misheppnaðara frisbí og svo hafnabolta sem gekk nú ágætlega :) Lukum svo kvöldinu með ís, ótrúlega kósí kvöld! Á morguner mér svo boðið í partý hjá Christinu, vinkonu Hjördísar, kollegiið hennar á afmæli svo að það verður risapartý og okkur Hjördísi er boðið í mat á undan, góð helgi sem sé!

Er loksins að verða búin á FADL námskeiðinu. Er að fara til Svendborg (40mín í burtu) á þriðjudag og miðvikudag á 2 vaktir á sjúkrahúsinu þar, voða spennó! Á fimmtudaginn verður svo haldið í megastuð til Lundar, Sverige þar sem ég mun búa í góðu yfirlæti hjá Kolbrúnu... karnival, eurovision, ball og hygge er á dagskrá, ekki slæmt!

Sjísús hvað ég er södd, úff :S

Vildi bara láta vita af mér, vona að þið hafið það sem allra best :D

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.05.2006 14:01:27 / berglind

Og þá var kátt í höllinni, höllini, höllinni...


Þá er looooooooksins komið að því, spanjólanum verður hent út!!!!! :D Það sem gerði útslagið var að hann vakti allt húsið rétt fyrir klukkan 5 í nótt, skellandi hurðum, hoppandi svo að húsið hristist, tónlist í botni, partý partý :S Verður eflaust ekki átakalaust samt að fá hann út, Preben kemur vonandi í dag að segja honum að flytja... I´ll keep u updated! A.m.k. ef tölvan mín virkar, hún er búin að haga sér undarlega síðan fyrir helgi, frýs endalaust og kveikir stundum ekki einu sinni á sér og er svo bara í gúddí inn á milli... vona að hún hressist sjálf svo ég þurfi ekki að fara með hana í viðgerð!

Helgin hefur annars verið áhugaverð skulum við segja, afarskrautlegt föstudagskvöld og laugardagurinn eftir því, sjónvarpsgláp svo í gærkvöldi og tekið á því í lestrinum í dag, lífefnafræði lífefnafræði og meiri lífefnafræði... verð nú að deila með ykkur aulaskapnum í mér... við Hjördís fórum út að borða áðan og mér tókst einhvern veginn að detta af stólnum gjörsamlega í slow motion og endaði svona í kelmmu milli tveggja stóla með hendur og lappir upp í loftið, getið ímyndað ykkur hvað við hlógum endalaust!

Annars er það helst í fréttum að ég er enn á fullu á námskeiðinu, því fer reyndar að ljúka bráðum loksins... er svo byrjuð í lífefnafræði, pása í anatómíunni... dissektion gekk rosavel, fékk að halda á heila síðasta daginn, það fannst mér ansi merkilegt, fylgdust með þegar hann var tekinn úr og alles! Svo fór ég á föstudaginn út á spítala í færdighedslabaratoriet sem er staður þar sem hægt er að koma öðru hverju á ýmis lítil námskeið tengdu náminu - við lærðum að sauma og svo að setja í æð (leggja venflon/drop), man ekki hvað það er kallað á íslensku... prófuðum fyrst á dúkkum og það gekk mjög vel en svo náði ég bara að prófa einu sinni á Söndru og það gekk ekki nógu vel hefði viljað prófa aftur! Hún prófaði reyndar tvisvar á mér, stakk einu sinni niður í bein átttts en svo gekk nú betur, hitti í æðina en stakk gat svo að nú er ég með marblett á handarbakinu :) Það var nánast liðið yfir tvær!!

Well well, lesa nokkar blaðsíður og svo ætlum við Hilla á línuskauta!

» 11 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 20:28:31 / berglind

Sól sól skín á mig... spanjóli burt með þig!


Spanjólinn spanjólinn spanjólinn.... þessi miði hékk á hurðinni hjá honum um helgina...



Jújú mikið rétt, reglurnar hans sem við áttum að fylgja og jújú einning mikið rétt - þetta er listi yfir það sem hann hefur verið að "brjóta" síðan hann flutti!!!! Og takið eftir þessu neðsta - EF VIÐ FYLGJUM ÞESSU EKKI ÞÁ MUN HANN MUNA EFTIR OKKUR Í FYRRAMÁLIÐ Langar að benda ykkur á að lesa spanjólasögurnar á blogginu hennar Hildar Gísla (blog.central.is/hillpill)... ok, lesturinn ætti að gefa ykkur örlitla mynd af ástandinu en ENGIN af þessum sögum kemst nálægt því hvernig hann hagaði sér í dag. Nenni hreinlega ekki að eyða tímanum í að segja frá því in details en til að gera langa sögu mjööööööög stutta þá lá hann á hurðinni hjá mér berjandi, sparkandi, æpandi, flautandi og ég veit ekki hvað og hvað í svona KORTER því að ég var búin a.m.k. 3-4x pent að segja honum að ég hefði ekki áhuga á að ræða við hann og by the way þá var ég búin að tala við hann í hátt í hálftíma stuttu áður, það kalla ég góða þolinmæði hjá mér en þegar það var löngu löngu orðið ljóst að það var ekki hægt að koma neinu viti fyrir hann (enda óþolandi að rífast við fólk sem skilur ekki helminginn af því sem maður segir) en já, þá lét ég mig kurteisislega hverfa.... en eins og ég sagði hann hætti ekkert og ég fékk m.a. miðann hér að ofan í andlitið og ég skal sko fylgja hans reglum annars...... jeje, annars hvað??? :) og hahaha, eitt að lokum - ég er líka illa innrætt eða eitthvað álíka (skildi hann ekki) og ég fékk það með MÓÐURMJÓLKINNI hahahahahaha hann þarf á hjálp að halda!! Þetta er svo skondið, ég hef hingað til talið mig ansi auðvelda að umgangast en það er greinilega stór misskilningur ;)

Hey það er eitt jákvætt við þetta allt saman.... nú hættir hann a.m.k. að reyna við mig, jííííhaaaaaa!!

Pabba ráð við honum er ágætt.... bara æpa GÚSSFRABA ala Anger Management!!! :D

Annars er ég voðaglöð, ekki annað hægt í blíðunni það var þvílík blíða í dag svo að eftir krufningu og crazyness þá kom Hjördís heim og við settumst út á pall með spil og bjór á hlírabolunum og svo joinuðu fleiri! Fór svo á fyrsta kvöldið af FADL námskeiðinu sem var bara voðafínt (námskeið sem ég tek til að geta unnið á spítalanum með skólanum). :haha:

OC fyrir háttinn, nótt nótt!

» 12 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 11:12:21 / berglind

Ekki fyrir viðkvæma


Í dag er ég búin að hmmmm... vakna, borða, hjóla í skólann, kryfja lík, hjóla heim...

Jebbs, byrjuðum að kryfja í skólanum í dag og verðum að því út næstu viku! Mér finnst þetta nú bara virkilega spennandi og um leið og maður er búin að taka fyrsta skurðinn þá er "hræðslan/feimnin" farin og þetta er ekkert mál finnst mér... það var eiginlega skrýtnast að sjá líkin í fyrsta skipti því þau líta ansi undarlega út skal ég segja ykkur... og formalínlyktin angrar mig ekkert sem betur fer, mörgum verður bara virkilega flökurt  af henni... fyrir ykkur sem viljið nánari upplýsingar þá er ykkur velkomið að hafa samband :)

Já, þetta verður stutt og hálfundarleg færsla verð að fara að lesa áður en ég versla í matinn og fer í spinning! Verð nú að kunna eitthvað um mitt svæði...

Vona að þið hafið haft það gott um páskana ;)

» 6 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 09:07:27 / berglind

Mikið erum við myndarlegar!




Við Hrefna og Jóhanna að spóka okkur í blíðunni í Odense :D

Haldiði að ég sé ekki bara búin að setja inn fullt fullt fullt af nýjum myndum á smugmuggið! Þið megið líka vera dugleg við að kommenta á myndirnar svo að það komi nýjar myndir efst á síðuna, eitthvað nýtt hjá þeim að hafa svona "popular" myndir - það eru þær sem eru með kommentum eða .ær sem fólk hefur gefið "thumbs up"?!!

En jæja, neyðist til að lesa í svona 2 tíma og svo verður sko chill í dag, páskaeggið borðað og svo verður sko stórhátíð í kvöld, við Hildur ætlum að elda læri með öllu tilheyrandi og drekka rauðvín og svo verða brownies og ís í eftirmat, namminamminamm.... næsta vika fer svo líklega í að kúpla sig nipur eftir allt átið, úfff ;)

GLEÐILEGA PÁSKA :D

» 5 hafa sagt sína skoðun

13.04.2006 09:07:08 / berglind

Meðan hafragrauturinn kólnar


Síðasta vaktin mín hefði ekki getað verið betri! Eftir kvöldmatinn fóru ég og Camilla (annar starfsmaður) ásamt tveimur af íbúunum (undarlegt orð!) á tónleika með Danser med Drenge sem er gömul dönsk shljómsveit, minnti mig dálítið á Stuðmenn og þvílíkt stuð!!! Þau eru frábær á sviði og það var svo yndislegt að fylgjast með Ninu (ein af sambýlinu)... hún var SVO spennt og glöð að þegar þau byrjuðu að spila og í hvert skipti sem það kom eitt af hennar uppáhalds lögum þá réð hún engan veginn við sig og hoppaði svoleiðis og spriklaði í stólnum sínum, brosti út að eyrum og hreyfði varirnar með... enda var hún orðin kófsveitt eftir aðeins nokkur lög! S.s. mikið fjör. Fór svo bara tilbaka upp á sambýli til að kveðja og ná í töskuna mína og hún María vinkona mín var ekki sátt við að ég væri að hætta og þá varð ég líka hálfsorgmædd... meira hvað ég get verið háð vinnunum mínum!

Var að skríða framúr núna :S Ákvað að sofa út í dag... þarf að koma mér í anatómíuna þegar ég er búin með hafragrautinn og svo ætlum við Hilla í gymmið later, er með svo hrikalegar harðsperrur í kálfunum reyndar að ég veit ekki hvað ég get gert mikið!

Hlakka svo til sumarsins... við mamma vorum að skipuleggja sumarfríið, stefnum á að ganga Fimmvörðuháls eina helgina og fara svo aðra langa helgi á flakk og kíkja í Landmannalaugar og eitthvað fleira skemmtilegt :D

Eitt að lokum... mamma spanjólans er búin að vera hérna í viku núna og þau eru nú doldið spes (ef einhver þekkir spænskar venjur þá endilega segið til ef þetta er normalt)... þau elda heitan mat a.m.k. tvisvar á dag og baka yfirleitt eitthvað líka og þau elda undantekningarlaust milli 23-24 á kvöldin og eru þá kannski að borða lasagne og köku uppúr miðnætti??? er þetta ekkert undarlegt??? Maður spyr sig.

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti